Fjallvegir eystra lokaðir eftir klukkan fjögur
Vegagerðin hefur ákveðið að loka öllum fjallvegum á Austurlandi eftir klukkan fjögur í dag. Leiðinni til suðurs verður strax klukkan tvö.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Byrjað verður á að loka leiðinni milli Reyðarfjarðar og Hafnar klukkan 14:00.
Eftirtöldum vegum hefur verið ákveð að loka klukkan 16:00: Sandvíkurheiði, Vopnafjarðarheiði, Möðrudalsöræfum, Vatnsskarði eystra, Fjarðarheiði, Fagradal og Oddsskarði.
Gert er ráð fyrir að leiðirnar verði opnaðar að morgni þriðjudags.