Skiptum lokið á Kaupfélagi Vopnfirðinga
Skiptum er lokið á þrotabúi Kaupfélags Vopnfirðinga sem úrskurðað var gjaldþrota árið 2004. Tæp 17% fengust upp í kröfur í búið. Töluverðan tíma tók að selja allar eignir og ganga frá skiptum á búinu.Heildarkröfur í búið námu 144 milljónum króna. Upp í forgangskröfur fengust 5 milljónir af 6,4 sem lýst var, upp í veðkröfur 18,9 milljónir af 102,4 en ekkert í aðrar kröfur upp á 35,2 milljónir króna. Alls fengust því tæpar 24 milljónir upp heildarkröfurnar eða 16,7%.
Kaupfélagið var stofnað árið 1908 og rak verslun á Vopnafirði allt þar til það varð gjaldþrota haustið 2004. Það hafði lengi glímt við rekstrarörðugleika. Árið 1990 gekk það til dæmis í gegnum nauðasamninga.
Á tuttugustu öldinni var félagið einn helsti atvinnurekandinn á Vopnafirði, rak slátur- og frystihús, bifreiðaverkstæði og trésmiðju ásamt því að eiga hlut í ýmsum fyrirtækjum.