Landrof ógnar bújörðum og náttúruminjum við Lagarfljót

lagarfljot_landbrot.jpgTöluvert eða mikið landrof er á fjórðungi strandlengju Lagarfljóts. Verst er ástandið á þeim jörðum sem eru næst ósum fljótsins. Bújarðir og náttúruminjar eru í hættu. Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs krefur Landsvirkjun um mótvægisaðgerðir.

Þetta kemur fram í nýlegri skýrslum Landgræðslan vann fyrir Landsvirkjun og er hluti af vöktun á Lagarfljóti og Jökulsá í Fljótsdal eftir Kárahnjúkavirkjun. 

Síðasta sumar var landrofið mælt frá Fljótsdalsstöð og að ósum Lagarfljóts, alls 211,5 km. Lítilsháttar rof eða ekkert var á 161 km, talsvert landrof á 36,5 km og mikið landbrot á 14 km.

Mikið rof á 3/4 jarðarinnar 

Verst er ástandið á þeim jörðum sem liggja næst ósum Lagarfljóts, Húsey og Hóli og Hólshjáleigu. Samkvæmt skýrslunni er talið að töluvert eða mikið landbrot sé á 55% af strandlengju jarðarinnar. Í skýrslunni segir að „landbrot sé með allri strandlengju Húseyjar.“

Verst er ástandið í Hóli/Hólahjáleigu. Töluvert eða mikið landbrot er á 75% strandlengjunnar. Töluvert rof er á fleiri jörðum, til dæmis Rangá, Geirastöðum II, Ekru og Egilsstöðum.

Á Egilsstöðum hefur líka orðið landaukning þar sem efni hefur hlaðist upp. Heimamenn segja það hafa gerst eftir að Jökulsá á Dal var veitt yfir í Lagarfljót með virkjuninni.

Hækkun grunnvatns og meira vatn en reiknað var með 

Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs í síðustu viku var því beint til Landsvirkjunar að unnin yrði áætlun um úrbætur og mótvægisaðgerðir gegn landbroti á bökkum Lagarfljóts. „Horft verði heildstætt á stöðu grunnvatns, aukið vatnsmagn og meiri straumþunga í Lagarfljóti og samspil og áhrif þessara þátta á landbrot,“ segir í bókun bæjarstjórnar.

Að mati bæjaryfirvalda er breytingin meðal annars rakinn til hærri grunnvatnsstöðu í fljótinu enda sé meira vatn í fljótinu en gert var ráð fyrir í reiknilíkönum við hönnun Kárahnjúkavirkjunar.Bújarðir og náttúruminjasvæði sem liggi undir skemmdum eru sögð sérstakt áhyggjuefni.

Í skýrslu Landgræðslunnar er ekki lagt mat á rofhraða eða ástæður rofsins. Það var utan verkefnisins.

Yfirlit af landbroti við Lagarfljót. Mynd: Landgræðslan

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar