Eiðar: Þjónar það flugöryggi að ljósin séu biluð langtímum saman?
Íbúar á Eiðum eru óhressir með ljósabúnað í langbylgjumastri Ríkisútvarpsins á Eiðum sem sé alltaf í ólagi og valdi þeim óþægindum. Annað hvort verði að setja upp búnað sem virki eða finna mastrinu annan stað fjær mannabyggðum.Þetta kemur fram í áskorun sem fjórtán íbúar á Eiðum hafa undirritað og send er sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði, RÚV, Flugmálastjórn og ISAVIA. Þar segir að ljósabúnaður í mastri langbylgjusendisins hafi nær stöðugt verið í ólagi undanfarinn áratug.
„Viðgerðir eins og þær sem fóru fram a.m.k. í tvígang á nýliðnu ári virtust ekki duga nema í örfáar vikur. Jafnvel ekki heilan mánuð.“
Bilun lýsir sér þannig að ljósin fara úr takti og byrja að senda út leiftur á fullu afli eftir að dimmt er orðið. „Þetta er vægast sagt hvimleitt og truflandi.“
Ljósunum var komið fyrir á sínum tíma að kröfu flugmálayfirvalda. „Það er því vægast sagt undarlegt ef það þjónar flugöryggi þegar sum ljósanna eru biluð langtímunum saman, meðan hin senda út á allt of miklum styrk og úr takti.“
Skorað er á flugmálayfirvöld, RÚV og Fljótsdalshérað að finna varanlega lausn á málinu. „Við sem búum hér í næsta nágrenni við þetta mannvirki unum þessu ekki lengur. Enn ein viðgerðin sem dugar ekki nema í mánuð er engin lausn.
Annað hvort verður að skipta um búnað og setja upp annan sem uppfyllir þær kröfur sem gera þarf og er stöðugur, eða hreinlega að þessu mannvirki í heild sinni verður að finna annan stað fjær mannabyggð.“