Úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald: Rannsókn málsins gengur vel
Karlmaður á þrítugsaldri var í kvöld úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á láti karlmanns á sjötugsaldri sem talið er hafa borið að með saknæmum hætti. Yfirlögregluþjónn segir rannsóknina ganga vel.Fulltrúi sýslumanns fór fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald en dómari úrskurðaði manninn í tveggja vikna varðhald á grundvelli almanna- og rannsóknarhagsmuna.
Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Eskifirði, segir rannsóknina ganga vel en verst annarra frétta af málinu.
Þannig vildi hann ekki svara því hvort játning lægi fyrir í málinu.
„Staðan er góð. Rannsóknin gengur vel,“ sagði Jónas. Í samtali við Austurfrétt í kvöld sagði hann að mikið af sönnunargögnum lægju fyrir en eftir væri að flokka þau og fara yfir. Þá hefði ekki verið tekin ákvörðun um hvar hinn grunaði yrði vistaður í gæsluvarðhaldinu.
Neyðarlínunni var tilkynnt um málið um klukkan átta í morgun. Hinn grunaði var handtekinn skömmu eftir það. Lögregla hefur ekki viljað svara því á grundvelli hvaða upplýsinga maðurinn var handtekkinn svo skömmu eftir að hún kom á vettvang.
Mennirnir tveir bjuggu báðir í fjölbýlishúsinu Blómvangi 2 á Egilsstöðum. Vettvangsrannsókn hefur staðið yfir í allan dag og verið rætt við vitni.
Hinn grunaði kom fyrir dómara að lokinni fyrstu yfirheyrslu klukkan hálf ellefu í kvöld í fylgd með verjanda. Hann var leiddur út úr dómssal kortéri síðar. Úrskurður dómara lá fyrir rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld.
Samkvæmt heimildum Austurfréttar var ungi maðurinn nýlega fluttur í Egilsstaði. Íbúar í blokkinni hafa sagt hann hafa verið í annarlegu ástandi í gærkvöldi, barið að dyrum og beðið um bjór og sígraettur. Lögreglan hafði afskipti af honum um miðnætti síðustu nótt. Hann var rólegur þegar hún ræddi við hann þá.