Nafn mannsins sem lést
Maðurinn sem lést á heimili sínu á Blómvangi 2 á Egilsstöðum aðfaranótt þriðjudags hét Karl Jónsson frá Galtastöðum fram í Hróarstungu. Hann var 59 ára, ókvæntur og barnlaus.Lögreglan rannsakar lát hans. Karlmaður á þrítugsaldri var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. maí í tengslum við rannsóknina.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu miðar rannsókninni vel og rætt hefur verið við fjölda manna vegna hennar