Faldi þýfi í bíldekkjum og reyndi að smygla með Norrænu
Tollverðir á Seyðisfirði haldlögðu mikið magn þýfis sem reynt var að koma úr landi með Norrænu í síðustu viku. Þýfið fannst í bifreið manns sem var einn á ferð.Í frétt frá Tollstjóranum kemur fram að meðal annars hafi fundist 355 kíló af kopar sem falin hafi verið í bifreiðinni. Einnig 180 kíló af muldu síuefni úr hvarfakútum, sem falin voru í plastpokum í fjórum jeppadekkjum.
Þá fannst glussaklippukjaftur, sem talinn er hafa verið notaður til að klippa hvarfakúta undan bílum. Mikið magn snyrtivara var einnig falið víðs vegar í bíl mannsins svo og sterkur segull, sem ætlað er að hafi verið notaður til að trufla öryggishlið í verslunum.
Að auki fundu tollverðir í bílnum 20 lítra brúsa með díselolíu og öfluga flugeldatertu, en hvoru tveggja er óheimilt að flytja með Norrænu.
Maðurinn sem um ræðir var aðili að umfangsmiklu hvarfakútamáli, sem upp kom á Seyðisfirði í apríl, þegar reynt var að smygla rúmlega 400 keramikeiningar úr nýjum og notuðum hvarfakútum úr landi.
Þýfið var afhent lögreglu en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið.
Þá handlögðu tollverðir mikið magn af bjór, víni og pylsum sem komu með fjórum þýskum rútum með ferjunni. Í Evrópu eru ferðamenn vanir að taka vistir með sér á milli landa en miklar takmarkanir eru á því hérlendis.