Nýtt hjúkrunarheimili rís á Egilstöðum: Samið um lækkun frá tilboði
Verksamningur um byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum á milli Fljótsdalshéraðs og VHE ehf. var undirritaður á fimmtudag. Síðustu vikur hafa staðið yfir samningaviðræður um breytingar á verkinu þar sem tilboðin sem bárust eftir útboð voru nokkuð yfir kostnaðaráætlun.„Ég horfi til þess að þetta sé upphafið á mjög farsælu verki og farsælu samstarfi,“ sagði Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs við undirritunina.
Jarðvegsvinnu er nú að verða lokið og starfsmenn VHE taka til hendinni við uppbyggingu heimilisins sjálfs strax í þessari viku.
Verksamningurinn hljóðar upp á 1,1 milljarð króna. Það er um 6% yfir kostnaðaráætlun en tilboðið var upphaflega 17% yfir áætlun.
Tilboðin voru opnuð um miðjan apríl en tveimur mánuðum síðar er samningum lokið. „Það hafa ákveðnir verkþættir verið felldir út sem leitað verður tilboða í þannig að þetta er ekki endanlegur kostnaður,“ sagði Björn.
„Það hafa verið gerðar ákveðnar breytingar í efnisvali sem leitt hefur til lækkunar kostnaðar. Eins var tekið frávikstilboði í steyptar einingar en útboðið gerði ráð fyrir að menn gætu gert slíkt frávikstilboð í steyptar einingar í stað uppsteypu.“
Verkinu á að vera lokið í árslok 2014.
Mynd: Unnar S. Hjaltason og Björn Ingimarsson undirritasamninginn.