Réðist inn á heimili lögreglumanns og hótaði heimilisfólki lífláti
Karlmaður réðist inn á heimili lögreglumanns í umdæmi lögreglustjórans á Seyðisfirði í gærkvöldi. Hann hótaði heimilisfólki meðal annars lífláti áður en hann hafði sig á brott.„Hann fer að heimili lögreglumannsins, hótar heimilisfólkinu meðal annars lífláti og öllu illu,“ staðfesti Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn á Eskifirði í samtali við Austurfrétt.
Lögreglumaðurinn var einn á vakt í umdæminu sem nær frá Vopnafirði í norðri til Seyðisfjarðar í suðri. Hann var ekki heima þegar innrásin átti sér stað.
„Það breytir ekki alvarleika málsins þótt hann hafi ekki verið heima,“ segir Jónas.
Rannsóknardeild Lögreglunnar á Eskfirði rannsakar málið í samvinnu við lögregluna í Seyðisfjarðarumdæmi.