Vetraráætlun Strætó gengin í gildi
Vetraráætlun Strætó á landsbyggðinni gekk í gildi í dag og gildir til 17. maí. Ein minniháttar breyting er á Austfjarðasvæðinu.Um er að ræða leið 56 sem gengur á milli Egilsstaða og Akureyrar. Þar verður ekki farin aukaferð á milli Akureyrar og Reykjahlíðar eins og síðasta vetur.
Strætó fer frá Egilsstöðum alla daga vikunnar klukkan 9:10 og frá Hofi á Akureyri klukkan 15:15. Hver ferð á milli tekur um þrjá og hálfan tíma.
Vetraráætlun leiðar 56.