Sjúkraþjálfunarstofan Heilsuleiðir opnuð: Fólk spyr eftir þessari þjónustu

lonneke heilsuleidir 0001 webSjúkraþjálfunarstofan Heilsuleiðir var opnuð á Egilsstöðum í dag. Stofnandinn segist finna fyrir töluverðri eftirspurn og hefur trú á að starfsmönnunum fjölgi innan tíðar.

„Biðlistarnir í sjúkraþjálfun hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands eru langir. Þess vegna ákvað ég að opna þessa stofu,“ segir Lonneke van Gastel, sjúkraþjálfari og eigandi Heilsuleiða.

„Menn eru byrjaðir að bóka tíma hjá mér og sá fyrsti kom í meðferð hjá mér í dag," sagði hún en gestum var boðið að skoða aðstöðuna í tilefni dagsins.

Stofan er staðsett í Níunni í miðbæ Egilsstaða. Í rými á efstu hæð hússins er búið að innrétta sjúkraþjálfarastofu með litlum tækjasal, fjórum meðferðarherbergjum og svæði til sjúkraþjálfunar fyrir börn sem er sérgrein Lonneke.

„Þessi aðstaða er ekki bara hugsuð fyrir einn starfsmann. Ég vonast til að fá fleiri með mér með fjölbreyttari bakgrunn.“

Lonneke er fædd í Hollandi en hefur unnið í Reykjanesbæ, Vopnafirði og síðustu sex ár hjá HSA með aðsetur á Egilsstöðum. „Það er gott að breyta til.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar