Nýjum lækni fagnað á Djúpavogi
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps fagnar því að tekist hefur að manna stöðu læknis í Djúpavogslæknishéraði. Leitað hefur verið eftir hjúkrunarfólki á svæðið síðustu misseri.Auglýst var eftir lækni í héraðið í lok síðasta árs en lítil viðbrögð voru við þeirri auglýsingu. Í sumar var staðan auglýst aftur og er Þórarinn Baldursson tekinn við starfinu. Aðsetur hans verður á Djúpavogi.
Í bókun frá síðasta fundi sveitarstjórnar Djúpavogshrepps er lýst „sérstakri ánægju“ og það sagt „sérstakt fagnaðarerindi að tekist hafi að manna stöðu læknis í Djúpavogslæknishéraði.“
Fjórir læknar skiptu þjónustu við Djúpavog og Breiðdalshrepp með sér síðasta vetur. „Það er erfitt að ná lækni inn í þessi einmenningshéröð,“ sagði Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri Djúpavogshrepps, á borgarafundi í vor.
Auk þess að berjast fyrir að fá lækni á svæði hafa forsvarsmenn sveitarfélagsins lagt á það áherslu að fá hjúkrunarfræðing á staðinn.
„Ráðuneytið hefur viðurkennt að full þörf er á hjúkrunarfræðingi á svæðið, bæði fyrir gamla fólkið og barnafólk. Þótt hann sé ekki í 100% stöðu skiptir miklu máli að hafa hjúkrunarfræðing hér með fasta búsetu,“ sagði Gauti við sama tilefni.