Ákærðir fyrir kannabisræktun og 15 milljóna peningaþvætti
Tveir karlmenn um þrítugt hafa verið ákærðir fyrir umfangsmikla kannabisræktun sem upprætt var við húsleit lögreglu í september í fyrra. Þeir eru einnig ákærðir fyrir peningaþvætti upp á um 15 milljónir króna.Mönnunum er gefið að sök að hafa um nokkurt skeið þar til um miðjan september í fyrra ræktað kannabisplöntur í sölu og dreifingarskyni til sölu og dreifingar.
Alls fundust 133 plöntur í ræktun við húsleit á tveimur stöðum. Í iðnaðarhúsnæði á Breiðdalsvík fundust 46 plöntur auk 13 plantna í Mitsubish Pajero bifreið sem var þar inni. Þær plöntur voru orðnar töluvert stærri en 74 plöntur sem fundust í gámi við heimili annars þeirra í Fellabæ.
Samkvæmt ákæruskjali eru mennirnir ákærðir fyrir peningaþvætti upp á 15,1 milljón. Við leitina fundust meðal annars 570 þúsund krónur í Pajero-bifreiðinni. Mestur hluti fjármunanna fannst við yfirferð á bankareikningum þeirra og eiginkonu annars þeirra.
Farið er fram á að samanlagt að 1,4 milljón króna í reiðufé úr sjóðum tvímenninganna verði gerð upptæk, en féð var haldlagt í aðgerðinni. Eins er farið fram á að búnaður til ræktunarinnar verði gerður upptækur, meðal annars 14 ræktunarlampar, níu tímastillar, vatnsdælur, perur, viftur og gróðurlampar.