Ákærður fyrir að falsa greiðslukvittun
Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir skjalafals með að því að hafa framvísað falsarði greiðslukvittun í milliríkjaviðskiptum.Samkvæmt ákæru framvísaði maðurinn síðasta sumar með tölvupóstsendingu falsaðri kvittun fyrir greiðslu fyrirtækis í hans eigu upp á 3750 sterlingspund, eða tæplega 600 þúsund krónur íslenskar á núverandi gengi.
Kvittunina á maðurinn að hafa búið til sjálfur í nafni Landsbankans til að fyrirtæki í Malasíu sendi fyrirtæki mannsins vörur sem hann hafði pantað að utan.
Fölsunin mun hafa falist í því að hann notaði greiðslukvittun vegna fyrri viðskipta fyrirtækjanna sem hann prentaði út úr heimabanka og breytti dagsetningum þannig að umrædd fjárupphæð virtist hafa verið millifærð á tilskildum tíma, þótt svo væri ekki.
Brot á lögum um skjalafals geta varðað allt að átta ára fangelsi.