Alls 57 fjölskyldur í Fjarðabyggð nutu styrks fyrir síðustu jól
Alls tókst að safna og úthluta um fjórum milljónum króna til handa þeim fjölskyldum er bágt stóðu félagslega eða fjárhagslega fyrir síðustu jólin í Fjarðabyggð. Alls 57 fjölskyldur í sveitarfélaginu fengu úthlutað.
Þessi árlega söfnun kallast Jólasjóður og er samvinnuverkefni fjölskyldusviðs sveitarfélagsins sjálfs, Rauða krossins og þjóðkirkjunnar en framlög koma víða að, frá einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum á svæðinu.
Sami háttur er hafður á þessari styrkveitingu og síðari ár að styrkurinn felst í úthlutun á inneignarkortum í verslun Krónunnar á Reyðarfirði en hugmyndin er fyrst og fremst að létta undir með fjölskyldum fyrir hátíð ljóss og friðar en þá eru útgjöld velflestra allnokkuð hærri en í öðrum mánuðum ársins.
Inneign hverrar fjölskyldu sem styrks naut um liðin jól nam því um 70 þúsund krónum sem munaði sannarlega um.