Tölvugerð myndbönd sýna öll möguleg jarðgöng á mið-Austurlandi
Þrátt fyrir að Fjarðarheiðargöngin milli Seyðisfjarðar og Héraðs hafi verið efst á forgangslista stjórnvalda hin síðari ár og hafi verið tilbúin til útboðs um tíma hefur það ekki komið í veg fyrir töluvert heitar umræður á samfélags- og fjölmiðlum hvort þau göng séu rétta skrefið í samgöngumálum fjórðungsins.
Einn aðili sem lagt hefur orð í belg á þeim vettvangi er Samgöngufélagið. Félagið lýsir sér sem hópi fólks sem lætur sig varða samgöngumál í landinu á víðum grunni. Á vef félagsins segir ennfremur að þar sé reynt að hvetja til skoðanaskipta og að öllum sjónarmiðum sé þar gerð skil eins og kostur er. Meginhugmyndin sé að stuðla að sem mestum framförum í samgöngum hvar sem er á Íslandi.
Á vef þeirra má meðal annars finna lista yfir kosti og galla hinna ýmsu samgöngubóta sem kallað er eftir úr hinum ýmsu landshlutum en varðandi gangnakosti austanlands hefur Samgöngufélagið gengið enn lengra og látið framleiða þrjú tölvugerð myndbönd sem sýna gróflega þá þrjá kosti sem helst er rætt um á Austurlandi.
Þar um að ræða Fjarðarheiðargöngin sjálf milli Seyðisfjarðar og Héraðs, göng frá Seyðisfirði yfir í Mjóafjörð og þaðan til Egilsstaða og göng í Mjóafjörð og yfir í Fannardal í Norðfirði.
Myndböndin má öll sjá hér að neðan:
Seyðisfjörður - Hérað
Seyðisfjörður - Mjóifjörður - Egilsstaðir
Seyðisfjörður - Mjóifjörður - Fannardalur