Alma farin frá Fáskrúðsfirði
Flutningaskipið Alma fór frá Fáskrúðsfirði að morgni laugardags til Akureyrar. Þar verður sett nýtt stýri á skipið og skemmdir á því kannaðar.
Það var norski dráttarbáturinn Stadt Valiant sem dró Ölmu af stað en skipið hefur legið við bryggju á Fáskrúðsfirði síðan 6. nóvember. Það missti þá stýrið er það var að sigla út frá Breiðafirði. Hoffell, skip Loðnuvinnslunnar, dró skipið til Fáskrúðsfjarðar
Alma er 97 metra langt skip, skráð í Limasson á Kýpur, en eigendur eru frá Úkraínu. Skráður eigandi flutningaskipsins er Armidia Shipping Company Limited.
Mynd: Gísli/lvf.is