Austfirskir ferðaþjónustu bíða og sjá hvaða áhrif fall WOW hefur
Austfirskir ferðaþjónustuaðilar virðast rólegir og ætla að bíða og sjá hver verða áhrif gjaldþrots flugvélagsins WOW Air í morgun.„Við höfum heyrt í nokkrum aðilum. Þetta gerðist bara í morgun og þeir vilja meina að ekki sé hægt að sjá áhrifin svona stuttu eftir,“ segir Jónína Brynjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú.
Starfsmenn á markaðssviði stofnunarinnar hafa í dag tekið púlsinn á austfirskum ferðaþjónustuaðilum í kjölfar gjaldþrots flugfélagsins. Samkvæmt greiningu Arion-banka leiðir gjaldþrotið til lækkunar landsframleiðslu um 1% sem dregur úr hagvexti, getur aukið verðbólgu og atvinnuleysi á þessa ári og næsta.
Jónína segir austfirska ferðaþjónustuaðila bíða og sjá hvað gerist. „Það voru margir svartsýnir fyrir síðasta sumar en svo rættist úr. Ýmislegt fleira hefur herjað á ferðaþjónustuna síðustu mánuði.
Ég held að margir upplifi sig á sama stað með að það borgi sig að bíða og sjá. Nokkrir nefndu að horfa þyrfti til markaðssetningar innanlands fyrir sumarið.“