Baltasar mjög ánægður með tökurnar á Seyðisfirði
Baltasar Kormákur leikstjóri Ófærðar 3 var mjög ánægður með tökurnar á Seyðisfirði í gærdag.Þetta kemur fram í máli Steinunnar Gunnlaugsdóttur fjármálastjóra RVK.Studios kvikmyndafyrirtækis Baltasars.
Sjálfur getur Baltasar ekki tjáð sig að sinni um þessa nýju þáttaröð af Ófærð. Steinunn segir hinsvegar að hann segir það hafa verið frábært að fá að snúa aftur til Seyðisfjarðar...“enda um einstakt bæjarfélag“ að ræða eins og hann orðar það.
Aðspurð um hvort tökuliðið myndi koma aftur til Seyðisfjarðar á næstu mánuðum segir Steinnunn að hún hafi því miður ekki upplýsingar um það ennþá.
Mynd: Norden.org