Banaslys við Hálslón
Laust fyrir klukkan átta í morgun barst lögreglunni á Austurlandi tilkynning um alvarlegt slys við Hálslón. Hinn slasaði var úrskurðaður látinn á vettvangi.Í tilkynningu lögreglu segir að sjúkralið og lögregla hafi haldið strax á staðinn auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð til.
Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu. Frekari upplýsingar er ekki hægt að gefa að svo stöddu.