Banaslys við Egilsstaði
Banaslys varð á Vallavegi um 10 kílómetrum sunnan við Egilsstaði, við bæinn Ketilsstaði á áttunda tímanum í morgun.Tilkynnt var um slysið milli klukkan 7 og 8 í morgun. Fólksbíll fór út af veginum út í skurð við bæinn Ketilsstaði á Völlum. Ökumaðurinn sem var á þrítugsaldri var einn í bílnum, hann var látinn þegar að var komið. Talið er að hann hafi látist samstundis.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði fer með rannsókn málsins í samvinnu við lögregluna á Egilsstöðum og rannsóknarnefnd umferðarslysa.
Ekki er hægt að birta nafn mannsins að svo stöddu.