Berglind Harpa í þriðja sætinu hjá Sjálfstæðisflokknum: Berglind Ósk hætt

Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi og varaþingmaður, mun skipa þriðja sætið á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, sitjandi þingmaður, gaf ekki kost á sér í það.

Kjörið var á kjördæmisþingi í Mývatnssveit í dag. Sex voru í framboði. Berglind Harpa fékk 88 atkvæði eða 55% greiddra atkvæða. Valgerður Gunnarsdóttir frá Húsavík fékk 30 atkvæði. Aðeins eru gefin upp atkvæði tveggja efstu frambjóðenda.

Að auki voru í framboði Almar Marinósson frá Þórshöfn, Kristinn Karl Brynjarsson frá Reyðarfirði og Akureyringarnir, Jón Þór Kristjánsson Ketill Sigurður Jóelsson og Telma Ósk Þórhallsdóttir. Greidd atkvæði hefur voru 161 og 16 auð eða ógild.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, sem verið hefur þingmaður frá 2021, gaf ekki kost á sér í þriðja sætið. Hún tapaði í kjöri um annað sætið fyrr í dag fyrir Njáli Trausta Friðbertssyni, fyrrverandi oddvita framboðsins. Sá missti oddvitasætið til Jens Garðars Helgasonar.

Á kjördæmisþinginu er kosið um röð fimm efstu frambjóðenda. Sá sem tapar í einu kjöri getur boðið sig fram í það næsta. Til viðbótar við þau sem voru í kjörinu um þriðja sætið hafði Þorsteinn Kristjánsson frá Dalvík gefið kost á sér í fjórða sætið áður en þingið hófst.

Berglind Harpa skipaði þriðja sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosningum. Hún hefur á kjörtímabilinu sex sinnum tekið sæti sem varaþingmaður. Hún hefur frá 2022 einnig verið oddviti flokksins í Múlaþingi, formaður byggðaráðs sveitarfélagsins og formaður Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi.

Leiðrétt: Í fyrstu útgáfu fréttarinnar var sagt að Berglind Harpa hefði fengið 80 atkvæði.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.