Bílvelta í Heiðarenda
Fólksbíll valt á veginum um Heiðarenda, á leiðinni frá Egilsstöðum norður á Jökuldal, milli klukkan 19 og 20 í kvöld. Ökumaður sem í bílnum var ásamt farþega sluppu ómeiddir, en bíllinn varð óökufær við veltuna.Lögreglan á Egilsstöðum segir að bíllinn hafi snúist út af veginum vegna hálku. Bíllinn sem var mikið skemmdur, ef ekki ónýtur eftir veltuna og var fluttur burt með kranabíl.
Lögreglan á Egilsstöðum beinir því til vegfarenda á Austurlandi að þeir vari sig á hálkublettum sem víða leynast á Héraðinu.