Boðað til íbúafundar vegna úrkomu
Sérfræðingar frá Veðurstofu Íslands munu fara yfir stöðuna á Seyðisfirði í ljósi mikillar úrkomu sem hefur verið þar síðustu daga á íbúafundi síðar í dag.Fundurinn verður haldinn klukkan 16:30 á fjarfundaforritinu Teams en hægt verður að komast inn á fundinn í gegnum vef Múlaþings.
Sérfræðingar Veðurstofunnar halda þar framsögu, fara yfir úrkomuspá næstu daga, kynna vöktun og svara spurningum. Þar verða einnig fulltrúar frá Múlaþingi, lögreglunni á Austurlandi og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Veðurstofan sendi frá sér tilkynningu seinni partinn í gær um að sólarhringinn á undan hefði úrkoma á Seyðisfirði mælst 22 mm. Samkvæmt tölum úr veðurstöð í bænum bættust aðrir 20 mm við fram yfir klukkan þrjú í nótt þegar loks tók að stytta upp. Aftur er búist við rigningu í nótt.
Þá hafði ekki mælst hreyfing á hryggnum við Búðará síðan á föstudag. Sú hreyfing var margfalt minni, 5-11 mm samanborið við rúman metra yfir nokkurra vikna tímabil í fyrrahaust. Ekki er því talið tilefni til aðgerða. Vatnshæð í flestum borholum lækkaði í gær en áfram er fylgst með aðstæðum.
Ekki hafa enn borist tíðindi af skriðuföllum á Austurlandi þrátt fyrir mikla úrkomu næstu daga. Skemmdir eru á veginum yfir Öxi eftir rigninguna og illfært yfir Mjóafjarðarheiði vegna aurbleytu. Mörg vatnsföll hafa vaxið hraustlega, þannig hefur vatnsyfirborð Lagarfljóts við Fellabæ hækkað um rúman metra undanfarinn sólarhring.