Borgarfjarðarhreppur: Tveir nýir í hreppsnefndinni

Jakob Sigurðsson, oddviti, fékk flest atkvæði í kosningum til sveitarstjórnar á Borgarfirði eystra. Tveir nýliðar eru í hreppsnefndinni sem er, líkt og fyrir fjórum árum, eingöngu skipuð karlmönnum.

Á kjörskrá voru 94. Atkvæði greiddu 65 eða 69,15%. Það er 9 prósentustigum betri kjörsókn en fyrir fjórum árum.

Atkvæði féllu þannig:

Jakob Sigurðsson 52 atkvæði
Eyþór Stefánsson 40 atkvæði
Jón Þórðarson 34 atkvæði
Jón Sigmar Sigmarsson 30 atkvæði
Helgi Hlynur Ásgrímsson 28 atkvæði

Varamenn

1. Elísabet Dögg Sveinsdóttir 29 atkvæði
2. Helga Erla Erlendsdóttir 30 atkvæði
3. Óttar Már Kárason 30 atkvæði
4. Bryndís Snjólfsdóttir 35 atkvæði
5. Jóna Björg Sveinsdóttir 29 atkvæði

Eyþór og Jón Sigmar koma nýir inn í hreppsnefndina, en Jón Sigmar hefur reyndar setið í henni áður.. Arngrímur Viðar Ásgeirsson síðasta haust og tók Helga Erla Erlendsdóttir sæti hans. Ólafur Hallgrímsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.