Breyta leikskólagjaldskrá eftir fundi með foreldrum í Fjarðabyggð
Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur ákveðið í kjölfar funda með foreldrum að gera þær breytingar á fyrirhuguðu nýju gjaldskrárkerfi leikskóla Fjarðabyggðar að lækka svokallað skráningardagsgjald úr fimm þúsund krónum í þrjú þúsund krónur. Þá skal og endurskoða reglurnar um íþrótta- og tómstundastarf barna.
Af hálfu Fjarðabyggðar var ákveðið á síðasta ári að gjaldskrá leikskóla sveitarfélagsins tækju breytingum sem eiga að taka gildi á næstu vikum. Þær breytingar farið misjafnlega niður hjá íbúum og fleiri aðilum eins og lesa má um hér.
Bæjarráðið tók í síðustu viku fyrir helstu atriði, gagnrýni og athugasemdir sem fram höfðu komið á íbúafundum sem haldnir hafa verið vegna breytinganna. Úr varð að bæjarráðið ákvað að gjald fyrir skráningardaga myndi lækka frá fyrri hugmyndum úr fimm þúsund krónum í þrjú þúsund krónur.
Svokallaðir skráningardagar eru hugsaðir til að auka sveigjanleika starfsfólks leikskóla Fjarðabyggðar og með þeim hætti gefa starfsmönnum aukið rúm til að nýta orlof sitt en ekki síður til að koma til móts við lög um styttingu vinnuvikunnar. Fjarðabyggð, líkt og mörg önnur sveitarfélög landsins, hefur glímt við mikinn mönnunarvanda í leikskólunum sem valdið hefur stórauknu álagi á það starfsfólk sem fyrir er. Umræddir skráningardagar eru alls 20 talsins og ná mikið til yfir tímann í dymbilviku og á milli jóla og nýárs.
Á sama fundi var jafnframt ákveðið að endurskoða skyldi reglurnar um frístundastyrk frá sveitarfélaginu þannig að sá styrkur taki eftirleiðis tillit til íþrótta- og tómstundastarfs sem fyrir reglur gerðu ekki ráð fyrir.
Bæjarráð Fjarðabyggðar hélt nokkra fundi með foreldrum barna í sveitarfélaginu til að kynna breyttar reglur um vistun barna en þær eiga að taka gildi innan tíðar. Mynd Fjarðabyggð