Bríet tekur við íbúðum frá Fjarðabyggð
Leigufélagið Bríet, sem er í eigu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, hefur samið við Fjarðabyggð um að taka við íbúðum í eigu sveitarfélagsins. Á móti eignast Fjarðabyggð hlut í félaginu.Um er að ræða íbúðir í Réttarholti 1-3 á Reyðarfirði. Öll réttindi og skyldur varðandi leigusamninga færast til Bríetar en breytingar eiga ekki að verða á stöðu leigjenda, að því er fram kemur í tilkynningu. Með samningum verður Fjarðabyggð fyrsta sveitarfélagið sem verður hluthafi í Bríeti.
„Með þessu höfum við tekið fyrstu skrefin í því að byggja saman upp traust og áreiðanlegt leigufélag á landsbyggðinni í eigu ríkis og sveitarfélaga.
Með þessu næst samræmi í umsýslu leigueigna á landsbyggðinni og verður henni sinnt af félagi sem er sérhæft í rekstri leigueigna. Samhliða þessu er það markmið Bríetar að auka samskipti og samvinnu við sveitarfélögin meðal annars varðandi uppbygginu nýrra leigueigna. Með því verður Bríet virkur þátttakandi í að auka húsnæðisöryggi, örva atvinnulíf og styðja við íbúaþróun á landsbyggðinni,“ segir í tilkynningu.
Markmið Bríetar er að vera hluti af uppbyggingu og styrkingu leigumarkaðar sem stuðlar að öryggi á langtímaleigumarkaði með sérstaka áherslu á landsbyggðina og samstarf við sveitarfélögin í landinu.
Soffía Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Bríetar og Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, undirrita samninginn. Mynd: Fjarðabyggð