Samið um sorphirðu í Fjarðabyggð

Búið er að skrifa undir samninga vegna sorphirðu í Fjarðabyggð, sem boðin var út nýverið. Alls bárust 24 tilboð í fjóra mismunandi verkþætti. Nýir verktakar taka við verkunum í vikunni.

Fjarðabyggð ákvað síðasta haust að endurnýja ekki samning sinn við Íslenska gámafélagið heldur bjóða út hirðingu, flutning, gámaþjónustu og móttöku hvert í sínu lagi. Eins gátu fyrirtækin boðið í heildarþjónustuna.

Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir markmiðið með breyttu fyrirkomulagið hafa verið að hleypa fleiri fyrirtækjum að borðinu. „Það eru fá fyrirtæki sem geta staðið undir því að bjóða í heildarþjónustuna. Við vorum sammála um að fara þessa leið til að gefa fleirum tækifæri á að koma inn. Við teljum þetta líka tækifæri til að auka atvinnuframboð í sveitarfélaginu, sem er jákvætt.“

Hann segir útboðin hafa skilað þeim árangri sem vænst var eftir. „Við vonumst eftir að fá góða og samfellda þjónustu og vonandi leiðir þetta ekki til aukins kostnaðar.“

Þá mun Fjarðabyggð á ný taka við rekstri gámastöðva og sorphirðusvæðisins að Þernunesi við Reyðarfjörð auk þess sem moltugerð flyst til Moltu ehf. í Eyjafirði.

Fyrir helgi var lokið við að skrifa undir samninga við lægstbjóðendur sem voru Kubbur ehf. í hirðingu, Hringrás í flutning, GS lausnir í gámaþjónustu og Terra í móttöku. Nýir þjónustuaðilar taka við frá og með 1. apríl.

FyrirtækiHirðing% af áætlunFlutningur% af áætlunGámar% af áætlunMóttaka% af áætlun
GS lausnir 94.965.333 153,9% 3.650.000 42,4% 17.447.800 60,3% 14.460.000 155,8%
Malbikunarstöð Austurlands     28.184.580 327,7% 1.082.683.233 3740,1%    
Rúnar Gunnarsson 73.590.238 112,5%            
Kubbur ehf. 65.399.619 106,0% 5.335.000 62% 29.062.928 100,4% 22.500.500 340,9%
Hringrás ehf.     3.432.000 39,9%        
HP Gámar 107.576.480 174,4%     19.227.476 66,4% 19.231.180 291,4%
Íslenska gámafélagið 69.951.190 113,4% 3.987.625 46,4% 23.420.000 80,9% 9.442.500 143,1%
Terra 73.463.031 119,1% 3.763.450 43,8% 29.651.252 102,4% 9.281.400 140,6%
Áætlun61.700.257100%8.600.000100%28.948.000100%6.600.000100%

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar