Byggðastofnun skoðar póstdreifingu í Breiðdal
Byggðastofnun, sem hefur eftirlit með póstþjónustu á Íslandi, hefur til meðferðar kvartanir vegna póstþjónustu í Breiðdal. Áætlanir um póstútborð þar hafa hvað eftir annað farið úr skorðum í vetur.Austurfrétt greindi frá því fyrir helgi að Breiðdælingar hefðu ekki fengið póst frá 17. desember til 9. janúar. Póstur er borinn þar út á þriðjudögum og fimmtudögum. Á þessum tíma hefðu því átt að vera fjórir útburðardagar.
Til viðbótar hafa fallið út útburðardagar í haust. Breiðdælingar segja rótina vera að eftir lokun pósthússins á Breiðdalsvík síðasta sumar sé einum póstbíl ætlað að fara frá Reyðarfirði til að dekka þéttbýlin á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík auk dreifbýlis í Stöðvarfirði og Breiðdal, sé óraunhæft á þeim tíma sem ætlaður er. Íslandspóstur hefur heitið endurskoðun á fyrirkomulaginu.
Íslandspóstur sinnir alþjónustu á pósti, það er tryggir póstdreifingu um allt land. Á fyrirtækinu hvíla réttindi og skyldur sem Byggðastofnun hefur eftirlit með. Í lögum um póstþjónustu er lögð sú kvöð á veitanda alþjónustu að bera út tvo daga í viku á heimilisföng þar sem föst búseta er.
Í gengum heimasíðu stofnunarinnar er hægt að koma á framfæri kvörtunum vegna póstþjónustu. Samkvæmt upplýsingum frá Byggðastofnun barst fyrr í þessum mánuði kvörtun vegna póstþjónustu í Breiðdal. Samkvæmt reglum á stofnunin að koma kvörtuninni áfram til fyrirtækisins, sem hefur verið gert og leita úrlausnar. Stofnunin getur fellt ákvörðun ef ekki næst samkomulag og hefur heimilt til að innheimta sekt sé ekki farið eftir ákvörðuninni.
Í samræmi við lög um póstþjónustu eru stærri breytingar á póstþjónustu tilkynntar til Byggðastofnunar. Undir það féll ákvörðun Íslandspósts að loka fjórum pósthúsum í Fjarðabyggð síðasta sumar. Stofnunin taldi breytingarnar innan marka laga við það en tæknilega færist póstagreiðslan þá úr pósthúsi yfir í póstbíl eða póstbox. Um leið var lokað pósthúsum í Fjallabyggð.
Í svari við fyrirspurn Austurfréttar segir að Byggðastofnun hafi ekki sérstaklega fylgst með hvernig til hafi tekist þar sem pósthúsum hafi verið lokað síðustu ár. Undanfarin misseri hafi borist kvartanir vegna póstþjónustu í Fjarðabyggð en úr þeim teljist hafa verið leyst.