Covid-smit staðfest á Vopnafirði
Tveir einstaklingar á Vopnafirði hafa greinst með Covid-19 veiruna. Báðir voru í sóttkví við greiningu.Hjördís Guðmundsdóttir, fjölmiðlafulltrúi almannavarna, staðfesti í samtali við Austurfrétt að tvö smit hafi verið staðfest á Austurlandi í morgun og bæði verið í sóttkví. Eftir því sem Austurfrétt kemst næst eru báðir einstaklingarnir búsettir á Vopnafirði.
Þar hefur staðið til að halda árshátíð grunnskólans í kvöld. Ekki er ljóst hvort eða með hvaða hætti hún fer fram.
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands kemur saman til fundar klukkan 13:00 og er frekari upplýsinga að vænta að loknum þeim fundi.