Dagmar Ýr er nýr framkvæmdastjóri Austurbrúar
Dagmar Ýr Stefánsdóttir mun taka við starfi framkvæmdastjóra Austurbrúar af Jónu Árnýju Þórðardóttur. Þetta var tilkynnt í dag.
„Það er veruleg tilhlökkun að takast á við ný og öðruvísi verkefni hjá Austurbrú,“ segir Dagmar í viðtali við Austurfrétt en hún hefur undanfarin tíu ár eða svo starfað sem upplýsingafulltrúi Alcoa/Fjarðaáls í Reyðarfirði.
„Ég er þannig manneskja að ég þarf að upplifa eitthvað nýtt og öðruvísi með reglulegu millibili. Ég hafði ekki hugsað mér neitt að skipta um starfsumhverfi enda afar gaman að vera að starfa í því fjölþjóðlega umhverfi sem starfið fyrir Alcoa hefur verið og er en svo sá ég þessa auglýsingu frá Austurbrú og sló til enda margt spennandi á þeim vettvangi líka.“
Dagmar Ýr er stúdent frá Menntaskólanum á Egilsstöðum og útskrifaðist síðar með BA-próf í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri. Hún starfaði um tíma hjá sjónvarpsstöðinni N4 sem var og hét áður en hún var ráðin í stöðu forstöðumanns markaðs- og kynningarmála hjá Háskólanum á Akureyri. Því starfi gengdi hún fram að stöðu sinni hjá Alcoa/Fjarðaáli.