Einstaklega góð jólaverslun á Egilsstöðum
Jólaverslunin í síðasta mánuði var einstaklega góð á Egilsstöðum og mun betri en í fyrra. Greinilegt er að íbúar bæjarins hafa tekið vel í áskoranir um að versla í heimabyggð.„Þegar við tókum púlsinn á jólaversluninni í miðjum desember kom í ljós að hún var mun meiri og betri en í fyrra. Við héldum þá að fólk væri bara fyrr á ferðinni en áður. Hinsvegar hefur þessi góða verslun haldið áfram alveg til jóla,“ segir Heiður Vigfúsdóttir eigandi Austurfarar sem vinnur ýmis verkefni fyrir Þjónustusamfélagið á Héraði.
„Við höfum hvatt fólk til að versla í heimabyggð og styrkja þannig nærsamfélag sitt. Það hefur greinilega skilað árangri,“ segir Heiður.
COVID hefur vissulega haft áhrif í þá átt að fólk hefur síður ferðast út fyrir fjórðunginn í leit að jólavarningi en Heiður bendir á að vefverslun sé á sama tíma alltaf að verða æ stærri hluti af jólaversluninni og auðvelt sé fyrir fólk að nálgast vörur hvaðan að án þess að fara út af heimilinu.
"Það sem ég tel að spili sterkt inn í myndina er gott vöruúrval og þjónusta á svæðinu samhliða því að heimamenn eru að verða enn meðvitaðri um mikilvægi verslunar í heimabyggð.“ segir Heiður.
Fram kemur í máli Heiðar að verslunareigendur á Egilsstöðum séu almennt mjög ánægðir með jólaverslunina.