Ekkert nýtt smit á Austurlandi

Ekkert nýtt covid-19 smit hefur greinst á Austurlandi undanfarinn sólarhring. Beðið er eftir niðurstöðu úr sýnum sem tekin voru í gær.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands. Aðgerðastjórnin fundar nú daglega en þar eiga sæti fulltrúar lögreglu, Heilbrigðisstofnunar Austurlands, sveitarfélaganna tveggja Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs, fyrir hönd félagsþjónustu þeirra sem saman sinna öllu Austurlandi, og fulltrúi Rauða krossins.

Almannavarnanefndin sjálf fundar vikulega, á mánudögum. Í nefndinni situr fulltrúi lögreglu, fulltrúar allra sveitarfélaga á svæðinu sem og fulltrúar slökkviliðanna tveggja í Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraði.

Þá hafa, vegna COVID-19 veirunnar, fulltrúar frá Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) mætt á fundi almannavarnanefndar, Rauða krossinum, Landsbjörgu, tollgæslunni, ISAVIA vegna alþjóðaflugvallarins á Egilsstöðum og Smyril Line vegna Norrænu á Seyðisfirði.

Aðrir fulltrúar Almannavarnanefndar, þeir sem ekki sitja í aðgerðastjórn, hafa og aðkomu að fundum hennar með því að bera fram dagskrárefni auk þess að vera upplýst daglega um það sem í gangi er.

Í tilkynningu frá Almannavörnum á Austurlandi segir að það sé mat þeirra sem sitja í Almannavarnanefnd og aðgerðastjórn að skipulagið hafi reynst vel og sé skilvirkt. „Þá er rétt að hafa í huga þessu til viðbótar að margir smærri hópar eru starfandi á svæðinu á vegum þessara og fleiri stofnana og félagasamtaka. Allir hafa þeir sama markmið að leiðarljósi, að aðstoða íbúa sem þess þurfa og koma okkur þannig í gegnum þetta verkefni saman.“

Engin ný smit greindust á Austurlandi síðastliðin sólarhring. Sextán sýni voru tekin í gær en niðurstaða margra þeirra ókomin enn. Hún ætti að liggja fyrir á morgun. Staðfest smit því enn fimm talsins. Eftir smitrakningu hefur þeim sem eru í sóttkví fjölgað lítillega, eru 216 en voru 209 í gær.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.