Engar hreyfingar mælst ofan Seyðisfjarðar
Engar hreyfingar hafa mælst í kringum Botnabrún, ofan Seyðisfjarðar, þrátt fyrir talsverða úrkomu þar síðustu nótt.Þetta kemur fram í færslu frá ofanflóðadeild Veðurstofunnar. Í morgun hafði uppsöfnuð úrkoma mælst um 20 mm en þá dró úr henni. Þá hefur gránað niður í Botnabrún. Búist er við að heldur dragi úr úrkomunni í nótt.
Ekki hefur orðið vart við neinar hreyfingar á Botnabrún, hvorki sjáanlegar né mælanlegar á speglum. Dagmálalækur hefur verið brúnleitur en það skýrist af skriðusári sem vætlar úr út í hann.
Fylgst hefur verið með hæð í vatnsmælum uppi í Botnum. Í þeim hækkaði um 35 sm. í nótt, en til samanburðar hækkaði um 10 metra þegar mest lét í rignunumum fyrir jól.
Áfram verður náið fylgst með aðstæðum og rýming endurskoðuð á morgun sunnudag.