Engar ákvarðanir um okkur án okkar
Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs vill að ríkara mark verði tekið á rödd þess fyrir ungs fólks í sveitarfélaginu. Engar ákvarðanir verði teknar varðandi ungt fólk á Héraði án þess að rætt verði við ráðið fyrst.
Þetta kemur fram í nýjustu fundargerð ráðsins. Þar eru nefndir sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs hvattar til að vísa málum sem varða ungt fólk í sveitarfélaginu til umsagnar hjá ráðinu.
Vísað er til þess að í samþykktum ráðsins hafi það þetta hlutverk enda sé það í góðu samræmi við eðlilegt lýðræðislegt ferli.
„Ungmennaráð minnir á að engar ákvarðanir um okkur eiga að vera teknar án okkar.“