Enn og aftur þarf að skera niður: Stjórnendur HSA leita illskástu leiðarinnar

hsalogo.gifFramlag ríkisins til Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) skerðist um rúmar 70 milljónir króna gangi hugmyndir sem settar eru fram í fjárlögum eftir. Að auki þarf stofnunin að ná niður um 150 milljóna vegna halla á rekstri og frestaðs sparnaðar á þessu ári.

 

Þetta kemur fram í Austurglugganum í dag. Skera þurfi niður af þremur orsökum: Í fyrsta lagi til að mæta sparnaðarkröfu stjórnvalda, í öðru lagi til að mæta geymdum niðurskurði frá þessu ári og í þriðja lagi til að glíma við rekstrarhallann. Alls nemur þetta um 220 milljónum króna.

Haft er eftir Einari Rafni Haraldssyni, framkvæmdastjóra stofnunarinnar, að launin séu erfiðasta viðfangsefnið. „Okkur tókst að reka stofnunina í samræmi við áætlanir fram að miðju ári eða fram að nýjum kjarasamningum. Afleysingar, veikindi og fleira hefur reynst okkur dýrara en við gerðum ráð fyrir.“

Einar Rafn segir að niðurskurðurinn þýði færri opnunardaga og minni þjónustu. „Annað getur ekki gerst. Við erum að reyna að finna illskástu leiðina til að mæta niðurskurðarkröfunum.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar