Fimmta smitið greint á Austurlandi

Fimm einstaklingar hafa nú greint með covid-19 veiruna á Austurlandi. Yfir tvö hundruð manns eru nú í sóttkví í fjórðungnum.

Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar á Austurlandi. Eitt nýtt smit hefur bæst við frá í gær.

Einstaklingum í sóttkví hefur fjölgað verulega, þeir eru nú 209 talsins. Í tilkynningunni kemur fram að fjölgun í sóttkví skýrist fyrst og fremst af fjölgun þeirra smita sem greinst hafi.

Samkvæmt upplýsingavef Almannavarna, covid.is eru aðeins þrír smitaður á Austurlandi og tæplega 180 manns í sóttkví. Ástæðan er sögð sú að ekki tekst í öllum tilvikum að hafa undan við skráningar fyrir landið allt og þar með inn á vefinn, COVID.is. Upplýsingar á Austurlandi, sem tilkynningar aðgerðastjórnarinnar byggja á, eru hinsvegar uppfærðar jafnóðum.

Aðstoð

Í tilkynningunni er farið yfir aðstoð við ýmsa hópa sem þurfa aðstoð eða stuðning út af því ástandi sem útbreiðsla veirunnar hefur skapað.

Rauði krossinn hefur tekið að sér að vera í reglulegu sambandi við þá sem eru í einangrun eða sóttkví og veita þeim aðstoð sem þurfa, svo sem við matarinnkaup og fleira. Þetta verkefni var áður alfarið hjá Heilbrigðisstofnunar Austurlands en er nú framkvæmt í þéttu samstarfi HSA og Rauða krossins.
Hópur er tekinn til starfa undir stjórn félagsþjónustu á Fljótsdalshéraði sem sinnir þörfum aldraðra og þeirra sem eiga erfitt með að fara úr húsi eða þurfa aðra aðstoð vegna ástandsins. Starfssvæði hópsins er Egilsstaðir, Fljótsdalshreppur, Djúpivogur, Vopnafjörður, Seyðisfjörður og Borgarfjörður eystri.

Þeir sem búa og dvelja á svæðinu og þurfa stuðning eða þjónustu eru hvattir til að nýta sér hana með því að hafa samband við félagsþjónustuna í síma 470 0700. Sambærilegur hópur með sama markmið og hlutverk er starfandi í Fjarðabyggð. Sími þar er 470 0900.

Samkomubann

Fulltrúar aðgerðastjórnar munu áfram fylgjast með ráðstöfunum verslana meðal annars og fyrirtækja vegna samkomubanns. Er þá litið til þess sérstaklega að í hópum séu ekki fleiri en tuttugu og að tveggja metra fjarlægðarreglu sé fylgt. Svo virðist hinsvegar sem samfélagið hafi tekið þessi tilmæli og önnur af fullri alvöru og ábyrgð. Ekki er ástæða til að ætla annað en svo verði áfram.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.