Fjarðaál hrósar starfsmönnum Landsnets
Stjórnendur Alcoa Fjarðaáls hafa komið á framfæri þökkum til starfsmanna Landsnets fyrir mikla vinnu við að koma Fljótsdalslínu 4, sem flytur rafmagn úr Fljótsdalsstöð í álverið, í gagnið fyrir jól.Starfsmenn Landsnets lögðu nótt við nýtan dag við að koma línunni í rekstur í lok síðustu viku og tókst það aðfaranótt síðasta laugardags. Skemmdir urðu á línunni eftir ísingarveður undanfarinna vikna.
Í tilkynningu frá Fjarðaáli er starfsmönnum Landsnets færðar þakkir fyrir „fumlaus vinnubrögð“ við að koma línunni „með öruggum og skjótum hætti í gagnið og tryggja þannig afhendingaröryggi á raforku til álversins við Reyðarfjörð.
Landsnet einhenti sér í verkefnið við erfiðar aðstæður og tryggði mannskap, tæki og verktaka til að koma línunni aftur í rekstur á eins stuttum tíma og mögulegt var án þess þó að slá af kröfum um öryggi við krefjandi veðuraðstæður. Á sama tíma var mikið eftirlit með Fljótsdalslínu 3 til að tryggja að ísing myndi ekki trufla rekstur hennar á meðan lína 4 var úti.
Afhendingaröryggi raforku er afar mikilvægt álverinu sem stólar á að missa ekki niður straum en slík truflun hefur áhrif á stöðugleika og framleiðslu.“
Þá fóru verktakar af stað og hreinsuðu ísingu af Fljótsdalslínu 2 á Þorláksmessu, en hún flytur rafmagn fyrir almenning. Hún leysti út daginn áður, trúlega vegna ísingar, en það orsakaði ekki rafmagnsleysi.