Fjarskiptalaust við Mjóafjörð

Fjarskiptasamband liggur niðri í Mjóafirði og er reiknað með að það komist ekki á aftur fyrr en í kvöld.

 

Um er að ræða bilun í örbylgjubúnaði, sem orsakaðist vegna rafmagnsleysis á svæðinu. Unnið er að viðgerð, en senda þarf varahluti frá Reykjavík og austur og er áætlað að viðgerð ljúki ekki fyrr en í kvöld.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar