Fjórir erlendir ferðamenn sluppu með skrekkinn á Fjarðarheiði
Betur fór á en horfðist þegar bifreið með fjórum erlendum ferðamönnum fór út af í hálku á Fjarðarheiði fyrir hádegi.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fór bíll fólksins út af veginum við Efri-Staf og töluvert langt út fyrir veginn.
Aðkoman leit því ekki vel út en fjórmenningarnir virðast hafa sloppið með skrekkinn. Þeir voru fluttir með sjúkrabíl á heilsugæslu til öryggis. Þeir héldu síðan för sinni áfram eftir að hafa fengið nýjan bílaleigubíl.