Fljúga með þotu til að mæta röskunum
Icelandair mun fljúga með þotu til og frá Egilsstöðum í kvöld til að mæta röskun sem orðið hefur á flugáætlun í dag vegna bilana.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Þotan á að fara í loftið frá Reykjavík klukkan 19:30 og Egilsstöðum 21:15. Þar á undan mun hún fara til Akureyrar.
Viðskiptavinir sem ekki geta nýtt sér flugið geta fengið endurgreiðslu með að fylla út eyðublað á vef Icelandair eða hringja í þjónustuver. Annar kostur er að breyta fluginu yfir á annan dag.
Morgunfluginu austur í morgun var aflýst eftir bilun í vél sem átti byrja daginn á að fljúga til Akureyrar. Þangað fór hún ekki heldur var snúið aftur við til Reykjavíkur.
Er þetta aðeins nýjasta atvikið í langri röð raskana síðustu vikur sem forsvarsfólk Icelandair hefur skýrt með aukinni eftirspurn eftir flugi eftir afléttingu samkomutakmarkanna, samhliða viðhaldi á vélum erlendis.
Undanfarna daga hefur flugið ítrekað verið langt á eftir áætlun. Þannig þannig hafa verið verulegar seinkunnir, upp á klukkutíma og oft meira en tvo, í að minnsta kosti einu flugi á dag síðan undanfarna viku.