Flutningabíll út af á Fjarðarheiði
Flutningabíll fór út af í Norðurbrún á Fjarðarheiði í morgunn. Engin slys urðu á fólki. Ferjan Norræna flýtti för sinni til og frá landinu vegna veðurs.Ökumaður var einn í bílnum en slapp ómeiddur. Bíllinn var að koma úr Norrænu og var ekki útbúinn til aksturs í íslenskri vetrarfærð. Verið er að undirbúa að koma honum aftur upp á veginn.
Umferð hefur að öðru leyti gengið ágætlega þrátt fyrir hálku.
Ferjan kom til Seyðisfjarðar í gærkvöldi en byrjað var að afgreiða hana klukkan sjö í morgun. Hún hélt svo af landi brott strax klukkan eitt, í stað þess að bíða til morguns eins og hún hefði átt að gera samkvæmt áætlun, vegna veðurspár.
Mynd: Aðsend