Forval á Fjarðarheiðargöngum í vor og útboð með haustinu

Forsvarsmenn Vegagerðarinnar gera ráð fyrir að forval vegna Fjarðarheiðarganga fari fram í vor, formlegt útboð verði með haustinu og göngin verði opnuð fyrir umferð vor eða sumar 2030.

Þetta kom fram á fundi Vegagerðarmanna með heimastjórn Seyðisfjarðar í síðasta mánuði. Þar kynnti Vegagerðin verkáætlun vegna hinna 13,3 kílómetra löngu ganga sem verða þá fjórtándu lengstu umferðagöng í veröldinni.

Vegagerðin gerir þannig ráð fyrir að útboð fari fram með næsta hausti en göngin sjálf eru þegar fullhönnuð auk vega og brúa utan ganga. Framkvæmdir gætu því tæknilega hafist vor eða sumar 2024 en verkefnið er enn ófjármagnað og því engin ákvörðun verið tekin um hvenær framkvæmdin sjálf verði boðin út.

Spá Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir að jarðgangagröfturinn sjálfur taki um þrjú ár eða svo, gegnumslag geti hugsanlega orðið sumarið 2027 ef hafist er handa á næsta ári og fullnaðarfrágangur taki aukreitis um þrjú ár eða svo. Göngin geti því verið opnuð fyrir umferð vorið eða sumarið 2030 fari allt að besta veg.

Heimastjórnin beinir því til sveitarstjórnarmanna að „sveitarstjórn [Múlaþings] haldi málinu vel að þingmönnum og ráðherrum og eigi í stöðugu samtali við þau um framgöngu þessara mikilvægu samgöngubóta.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.