Framkvæmdatími við nýja akbraut við Egilsstaðaflugvöll tvö ár

Tvö ár tekur að gera nýja akbraut við flugvöllinn á Egilsstöðum þannig að völlurinn geti tekið við fleiri þotum ef grípa þarf til hans sem varaflugvallar vegna millilandaflugs.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í gögnum sem Isavia hefur sent Skipulagsstofnun vegna fyrirspurnar um hvort framkvæmdin þurfi í mat á umhverfisáhrifum.

Til stendur að leggja 970 metra langa akbraut meðfram flugbrautinni. Þar með væri hægt að taka við tíu millilandaþotum í stað fjögurra í dag.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdin taki tvö ár, hið fyrra fari í að fergja svæðið en hið seinna í að leggja yfirborð brautarinnar. Í það þarf um 170 þúsund rúmmetra af efni, sem gert er ráð fyrir að sækja í námur í Mýnes og Selhöfða.

Samkvæmt drögum að samgönguáætlun, sem liggja fyrir Alþingi, eru framkvæmdir fyrirhugaðar á árunum 2026-7 og kosta rúman einn milljarð króna. Hagsmunaaðilar í flugi sem og sveitarstjórnir á Austurlandi hafa þrýst á að framkvæmdum verði flýtt því þörf sé á öflugri varaflugvelli fyrir Keflavík hérlendis. Deiliskipulag svæðisins var klárað árið 2021.

Í erindinu er lauslega gerð grein fyrir helstu umhverfisáhrifum sem framkvæmdin er talin geta haft. Almennt eru þau ekki talin mikil en þó helst þarf að huga að votlendi í námunda við völlinn sem nýtur verndar og er mikilvægt fuglum. Allt varp er utan girðingar.

Auglýsing um athugasemdir við matsskylduna birtist í skipulagsgáttinni í fyrradag. Fiskistofa hefur þegar skilað inn sinni umsögn. Þar kemur fram að akbrautin hafi væntanlega lítil áhrif á vatnalíf þar sem farvegi Eyvindarár verði ekki raskað frekar. Mengunarhætta sé þó alltaf fyrir hendi á rekstrartíma.

Gert er ráð fyrir að Skipulagsstofnun taki ákvörðun um framkvæmdin sé mattskyld innan sjö vikna. Frestur til að senda inn athugasemdir er til 26. mars.



 
 

 

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.