Fyrirlestur um forvarnir gegn einelti
Fréttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 25. okt 2012 14:22 • Uppfært 08. jan 2016 19:23
Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur flytur í dag fyrirlestur um aðgerðir gegn einelti í húsnæði björgunarsveitarinnar Héraðs á Egilsstöðum. Tilgangurinn er að vekja athygli á málaflokknum, einkum meðal starfsfólks og sjálfboðaliða félagasamtaka.
Það er Æskulýðsvettvangurinn, samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, KFUM og KFUK á Íslandi, Bandalags íslenskra skáta og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, sem í haust stendur fyrir hringferð um landið með 90 mínútna fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála.
Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur, flytur fyrirlestur byggðan á ný út kominni bók sinni, EKKI MEIR, sem er leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn.
Tilgangurinn með erindinu er að vekja athygli á þessum málaflokki, opna betur augu starfsfólks og sjálfboðaliða fyrir því að vera vakandi og ávallt á verði gagnvart einelti og annarri óæskilegri hegðun.
Erindin eru opin fyrir alla.
Erindið í dag hefst klukkan 17:00 og er áætlað að það taki einn og hálfan tíma. Það er haldið í húsnæði björgunarsveitarinnar Héraðs að Miðási 1.