Gott ár hjá Síldarvinnslunni: 260 þúsund króna launauppbót til starfsmanna
Síldarvinnslan hf. hefur ákveðið að greiða föstum starfsmönnum sínum í landi 260 þúsund króna launauppbót í næstu viku. Með þessu er þeim þakkaður góður árangur fyrirtækisins á árinu sem er að líða.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Síldarvinnslan sendi frá sér í dag. Þar segir að fyrirtækið hafi áður greitt starfsmönnum sínum 100 þúsund króna uppbót þannig að uppbætur umfram samninga nemi orðið 360 þúsund krónum á árinu.
„Það hefur verið mikil vinna á árinu hjá okkur þar sem allir hafa lagst á eitt við hámörkun verðmæta úr þeirri auðlind sem við höfum aðgang að. Með þessum greiðslum viljum við leyfa starfsmönnum okkar að njóta þess árangurs sem þeir hafa náð með okkur á árinu,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir að aldrei hafi verið unnið jafn mikið af uppsjávarfiski til manneldis og í ár þótt Síldarvinnslan hafi þurft að laga sig að samdrætti í móttöku fiskimjölsverksmiðja.
Framtíðin er samt óráðin. Aflaheimildir skerðist á næsta ári og óvissa sé um makrílveiðar. Fyrirtækið hafi samt náð að aðlaga sig að sveiflum í aflaheimildum og breytingum á mörkuðum.
„Við erum sífellt að auka verðmæti þess afla sem berst að landi hjá okkur og gera meira úr þeirri auðlind sem við höfum aðgang að, okkur og þjóðinni til framdráttar.“