Gul veðurviðvörun um allt Austurland
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir allt Austurland í kvöld og á morgun. Veðrið er þegar byrjað að versna.Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að á Austurlandi að Glettingi muni gang í suðvestan 18-25 m/s með vindhviðum yfir 40 m/s. Lausamunir geta fokið og tafir orðið á umferð. Gengur í norðvestanátt með slyddu eða snjókomu seint í kvöld.
Á Austfjörðum segir að ganga muni í vestan og síðan norðvestan 18-23 m/s með vindhviðum yfir 40 m/s. Lausamunir geta fokið og tafir orðið á umferð.