Gul viðvörun á Austurlandi
Gul viðvörun vegna veðurs er gengin í gildi fyrir Austurland að Glettingi. Fjallvegir á Austurlandi eru margir lokaðir.Viðvörunin tók gildi klukkan sjö í morgun og stendur til 13:00. Spáð er norðvestan 15-23 m/s og rigningu á láglendi. Fólk er hvatt til að ganga frá lausum munum utan dyra.
Úrkoman fellur sem snjókoma til fjalla og spillir færð. Ófært er um Möðrudalsöræfi, þungfært á Fjarðarheiði og krapi eða snjóþekja á Fagradal. Á síðastnefndu vegunum bætir enn í snjóinn og er hvasst. Þæfingur er á Breiðdalsheiði en snjóþekja á Vatnsskarði. Í Hamarsfirði er óveður.
Þegar líður á daginn snýst vindur til suðurs eða suðvestan og lægir heldur og styttir upp en þó ekki af alvöru fyrr en í kvöld.
Á Austfjörðum er búist við heldur minni úrkomu og aðeins hægari vindi, þó 13-20 m/s fram undir hádegi.
Mikil úrkoma hefur þegar fylgt veðrinu, sú mesta á landinu frá miðnætti er á Borgarfirði, 64 mm klukkan sjö í morgun. Morgunfluginu frá Reykjavík til Egilsstaða var aflýst.
Mynd úr safni eftir Ómar Bogason.