Hafnar að Framsókn fari halloka í samstarfi
Oddviti Framsóknarflokks hafnar því að framboðið beri skarðan hlut frá borði þrátt fyrir að vera aðeins með formennsku í einn af fjórum fastanefndum samkvæmt meirihlutasamkomulagi flokksins við Sjálfstæðisflokkinn í nýju, sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi.Samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar, sem væntanlega mun heita Múlaþing, var staðfest í gær. Flokkarnir fengu samanlagt sex fulltrúa af ellefu kjörna í sveitarstjórnina, Sjálfstæðisflokkurinn fjóra og Framsóknarflokkurinn tvo.
Samkvæmt meirihlutasamkomulagi fær Sjálfstæðisflokkurinn forsæti bæjarstjórn auk formennsku í byggðaráði og fjölskylduráði meðan Framsóknarflokkurinn fær formennsku í umhverfis og framkvæmdaráði.
Á móti kemur að Framsóknarflokkurinn fær tvo fulltrúa í ráðunum og verða flokkarnir því með jafn marga fulltrúa í ráðunum þremur, en sjö einstaklingar sitja í hverju þeirra.
Skipta með sér fulltrúum í ráðum
Oddvitar meirihlutans, þeir Stefán Bogi Sveinsson frá Framsóknarflokki og Gauti Jóhannesson frá Sjálfstæðisflokki, kynntu meirihlutasamkomulagið á fréttamannafundi í gær. Stefán Bogi hafnaði þar því að Framsóknarflokkurinn bæri skarðan hlut frá borði og vísaði þar meðal annars til fulltrúafjöldans.
„Það eru miklar breytingar á uppbyggingu nefnda og ráða. Við Framsóknarmenn lögðum mikla áherslu á skipulagsmálin og þau verkefni sem færu þar framundan í okkar kosningabaráttu. Því var það kappsmál að fá tækifæri til að leiða þá vinnu. Við erum líka ánægð að vera með tvo fulltrúa í ráðunum. Mestu skiptir þó að sameinast um málefnasamningin og tryggja gott samstarf,“ sagði hann.
Stefán Bogi verður formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs en Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki skipt sínum embættum á milli fulltrúa.
Minnihlutinn skipar í tvær heimastjórnir
Innan hins nýja sveitarfélags munu starfa fjórar heimastjórnir, ein fyrir hvert núverandi byggðarlaga. Í þeim verða þrír fulltrúar, tveir hafa þegar verið kosnir af íbúum en sveitarstjórn skipar þriðja fulltrúann. Sami háttur er með varamenn þannig að sveitarstjórn þarf að skipa alls átta fulltrúa.
Á fundinum í gær kom fram að minnihluti Austurlista, Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Miðflokks muni eiga fulltrúa í tveimur heimastjórnum og meirihlutinn í tveimur. Ekki var nánar tilgreint hvernig heimastjórnirnar skiptast milli framboða né hverjir sitja í þeim. Það skýrist á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar sem stefnt er á að verði í næstu viku.
„Í anda þess sem kemur fram í niðurlagi málefnasamningsins við viljum eiga gott samstarf við alla lista sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn höfum við eftirlátið minnihlutanum sæti í tveimur heimastjórnum.“
„Fulltrúi sveitarstjórnar í heimastjórn ber þar ábyrgð fyrir hönd sveitarstjórnar allrar og það er mikilvægt að fólk líti þannig á að það sé sameiginlegt verkefni að sinna heimastjórnunum. Í okkar samtali hefur komið fram að ekki sé endilega skynsamt að fulltrúar taki sæti í heimastjórn sinnar heimabyggðar heldur verði til þekking og aukin tengsl milli svæða innan sveitarfélagsins,“ sagði Stefán Bogi.