Hannes er ekki að flytja á Höfn
Hannes Sigmarsson, læknir á Eskifirði, segir ekkert hæft í sögum um að hann sé að flytja á Höfn. Hann segist hafa sótt um læknisstarf sem auglýst hafi verið í Fjarðabyggð.
Þetta kemur fram í eftirfarandi yfirlýsingu sem Hannes sendi frá sér í morgun.
„Fyrir hönd fjölskyldunnar á Mel Eskifirði vil ég taka fram eftirfarandi vegna þráláts orðróms um að ég og fjölskylda mín séum flutt á Höfn, taka fram, að þetta á ekki við nein rök að styðjast. Við búum á Eskifirði sem er í Fjarðabyggð og munum búa þar áfram. Þess skal getið að ég hef sótt um læknisstarf það sem auglýst var nýlega í Fjarðabyggð heilsugæslu.
Virðingarfyllst
Fyrir hönd fjölskyldunnar á Mel Eskifirði
Hannes Sigmarsson.“